Björk var í viðtali við Þórhall Gunnarsson í Návígi í Sjónvarpinu.
Þar talar hún um niðurstöður Neistafundanna. Þá er að finna á nattura.info Inngangur að Neista árið 2008: Í framhaldi af Náttúrutónleikum 2008 hóf Björk Guðmundsdóttir rannsókn á grósku atvinnulífs á Íslandi og boðaði í kjölfarið til vinnufunda, í samvinnu við vefinn Nattura.info, Háskólann í Reykjavík og Klak, nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins. Á vinnufundum þann 12. og 19. október 2008., komu saman í opinni samræðu um hundrað sérfræðingar; fræðimenn, fjárfestar og iðnhönnuðir, fulltrúar atvinnuþróunarfélaga, fagsamtaka og þekkingarfélaga um land allt, ásamt þeim sem hafa unnið að hugmyndasköpun, fyrirtækjamyndun og annarri nýsköpunarstarfsemi á sviði sjálfbærni og fjölbreytileika. Á fundunum var þátttakendum skipað til átta borða; heilsuborðs, hátækniborðs, menntaborðs, ferðaborðs, hönnunarborðs, matarborðs, líftækniborðs og orkuborðs. Auðveldlega hefði mátt sitja við fleiri borð, svo sem menningar- og listaborð, fjármálaborð og stjórnmálaborð og kemur vonandi að þeirri veislu innan tíðar. Meðfylgjandi eru þær ályktanir sem dregnar hafa verið úr frjórri samræðu vinnufundanna og þeirri umræðu sem fór þar í gang og hefur síðan haldið áfram í ýmsum samræðu- og aðgerðahópum og einnig á virkum póstlista Neista sem telur 120 manns og óðum stækkar. Því enn má efla tengslanet þeirra sem hafa reynslu og þekkingu á kviku kerfisins og á ólíkum sviðum nýsköpunar.
Hér er eru Neistarnir: Neisti allur pakkinn samþjappaður, zip í einni möppu. Meira er á nattura.info |