Rödd þjóðarinnar ! Karaókímaraþon í Norræna húsinu 6. 7. og 8. janúar 2011 Á þréttándanum lætur þjóðin rödd sína heyrast. Í Norræna húsinu og um allt land ætlar landsþekkt tónlistarfólk og áhugafólk að stíga á stokk og flytja orkumikinn óð til náttúrunnar. Eru allir hvattir til að taka þátt og syngja sitt uppáhaldslag í stærsta karaókíi Íslandssögunnar. Jóhanna Sigurðardóttir sagði að vart skyldi sniðganga áskorun sem 15 % kosningarbærra þegna skrifa undir. Nú þegar hafa safnast rúmar 20.000 undirskriftir á áskorun á orkuaudlindir.is um að stjórnvöld taki mark á ósk þjóðarinnar um orkuauðlindirnar. Maraþonsöngurinn heldur áfram þar til 15 % er náð; Þegar 35.000 Íslendingar hafa skrifað undir ! Óskin er einföld: Náttúruauðlindir Íslands í eigu og lögsögu almennings ! Allir sem bera hag landsins fyrir brjósti eru hvattir til að láta í sér heyra. Laglausir og lagvissir, karókísöngvarar, áhugafólk og stórsöngvarar um allt land leggjast á eitt til að halda söngnum áfram í minnst þrjá daga við lifandi hljóðfæraleik og undirspil karókívéla og sjálfspilandi pípuorgels. Tónlistarfólk er hvatt til að senda inn stafrænar upplýsingar (midi) um lögin sín til Bjarka, tæknimanns karaókísins á orkuadlindir@gmail.com Nánari upplýsingar um viðburðinn verða sendar út á nýju ári ! Að þessum viðburði koma margir aðilar með hjálparhendur, hyggjuvit og hugmyndaflæðiði;. Björk & aðstandendur síðunnar orkuaudlindir.is, nemendur Listaháskólans, tónlistar- og leikhúsfólk og Norræna húsið. |